föstudagur, júlí 28, 2006

Af vinnandi manni
Ég sá fyrir mér gott sumar í sól upp í lyftu utan á blokk en í staðinn þarf ég að fara lengst upp í Grafarholt í rigningu og vinna inni við að slípa veggi og sprauta málningu. Um leið og maður kláraði eina íbúð þá beið önnur. Blokkin sem ég var að vinna í kláraðist samt í vikunni en hvað þá...
labbað yfir í blokkina hliðiná og byrjað á henni jibbíí!!!
Annars hefur maður verið að flakka aðeins um helgar og svo sparka í bolta. Okkur gengur nokkuð vel í boltanum en mér tókst að brjóta á mér puttan í seinasta leik sem var þó ekkert það slæmt og hamlar manni ekki í vinnuni.
Það sem maður horfir núna til er ferð á LISTEN ráðstefnu í Þrándheimi í Noregi með skólanum strax eftir versló sem þýðir að það er bara ein vika í 9 daga frí hjá mér!
Svo er sumarið bara búið eftir það. Þetta nær náttúrulega engri átt!

3 Comments:

At 16:21, Anonymous Nafnlaus said...

Á ekkert að fara að blogga frændi?!! Vildi annars benda þér á að ég og Laufey erum komin með ferðabloggsíðu: http://www.blog.central.is/runaroglaufey

 
At 21:23, Blogger Heidrun said...

ert þú búinn að gleyma hvernig á að blogga?

 
At 17:43, Anonymous Nafnlaus said...

Ertu kannski ennþá að mála þessa andskotans blokk?

 

Skrifa ummæli

<< Home